Hafliði Kristinsson lauk guðfræðinámi í Bandaríkjunum 1984. Hann starfaði sem prestur í 13 ár, til ársins 1997, þá fór hann í framhaldsnám í fjölskyldu- og hjónaráðgjöf í Fuller Seminary í Pasadena í Kaliforníu. Hann hefur starfað frá árinu 2000 við fjölskyldu- og hjónaráðgjöf.