Glápið er hlaðvarp fyrir alla sem hafa áhuga á því sem er að gerast í sjónvarpsheiminum. Sjónvarpsjúklingarnir Áslaug Torfadóttir og Vignir Hafsteinsson glápa á alls konar þætti, bæði nýja og gamla, góða og slæma og ræða svo í þaula.
Í fyrsta þætti tekst Glápið á við Netflixsmellinn Stranger Things. Eru þættirnir mesta snilld síðari ára eða ofmetin nostalgíufroða? Er hægt að vera meiri töffari en Eleven? Og ætlar enginn að athuga með Barb??
ATH: Tekið skal fram að umræðan um Stranger Things er uppfull af „Höskuldum“ (spoilers), þannig að best er að geyma þann hluta þar til þú hefur horft á alla seríuna. Hins vegar fjallar fyrri hluti þáttarins bara um nýjustu fréttir úr sjónvarpsheiminum og óhætt að hlusta á hann án spilla.