Við hitum upp fyrir tvo viðburði sem verða helgina 26.-27.september næstkomandi. Joy Orbisson kemur fram í Austurbæjarbíói föstudagskvölið 26.sept og á þessi framsækni og funheiti tónlistarmaður þrennu kvöldsins. Í íslensku deildinni heyrum við nýlegt lag úr óvæntri átt, frá þeim Daniil og Páli Óskari og síðan er rúsínan í pylsuendanum tvö glæný lög frá GusGus sem bárust í þáttinn á meðan við vorum að taka hann upp og við að sjálfsögðu setjum þau bæði í loftið og hitum í leiðinni upp fyrir risaafmælistónleika sveitarinnar í Laugardalshöll þann 4.október. DJ sett kvöldsins verður svo í höndum DJ Tóta út DJ dúóinu Young G&T, en þetta er í fyrsta sinn sem hann kemur fram í þættinum. Hann ætlar að tromma upp viðburð sem verður í Iðnó Laugardagskvöldið 27.september þar sem aðalnúmer kvöldsins eru þeir Markus Homm og Gorge. Dj settið verða lög eða remix frá þeim köppuum. Þéttur og funheitur þáttur sem tekur púlsinn á viðburðaríkri dansenunni þessa dagnana. VAFRIÐ dansandi á Party Zone.